Útsýnishjólið okkar er loksins búið að opna!

Á þjóðhátíðardegi Íslendinga og 80 ára afmæli lýðveldisins, þann 17.Júní 2024, skellti borgarstjóri Reykjavíkur sér í fyrstu ferðina!

Einar Þorsteinsson borgarstjóri ásamt starfsmanni okkar

Við erum einstaklega ánægð með að vera búin að opna, og einnig einstaklega stolt af því að geta boðið fólki upp á hæsta og besta útsýnið yfir hafnarsvæðið og miðbæinn!